Lífið er eins og strigi.... Gerðu listaverk úr þínu :)

What goes around comes around

11.12.2008 22:45:28 / Piglet

Allt að gerast....

Jæja það er bara allt að gerast,
Árshátíðin er búin og gekk hún bara mjög vel.
Það sem er helst í fréttum er að ég er hætt í Garðabæ og farin að vinna Skeifunni sem er opin allann sólarhringinn :) Næst á dagskrá er að flytja frá Garðari til Ingu Láru þá verður bara partý partý partý og stelpukvöld ;)

Ýkt flott mynd af verðandi sambýlingum :)


Þetta var bara svona helsta sem er að gerast hjá mér.....
.......þangað til næst

Kv
Nanna flutningakona :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 22:31:43 / Piglet

Home sweet home....

.... mikið er alltaf gott að koma heim til Akureyrar :) Það er orðið frekar langt síðan síðast en það er allt í lagi þar sem það hefur ekki mikið gerst :) Hef aðallega eytt mínum tíma í vinnuna, er reyndar núna í sumarfríi á Ak að passa fyrir mömmu og pabba. Þau fóru til Rohdos í viku og ég er búin að vera í mömmuleik síðan :) Þau eru að koma heim á eftir og það verður voða gott að fá þau aftur heim, ég fer ekki suður fyrr en á mánudaginn svo ég næ að hitta þau eitthvað.

Ég fór á þjóðhátíð um verslunarmannahelgina með stelpunum og við skemmtum okkur alveg æðislega, þetta er eitthvað sem allir verða að prófa allavega einu sinni. Það er bókað mál að ég fer aftur :) Það var bara allt skemmtilegt við þessa ferð :haha::haha:

Það sem er næst á dagskrá er árshátíðin :) og fyrst ég er komin í stjórn starfsmannafélagsins þá verð ég í atriði aftur í ár og Guðrún líka :) það verður tvöfallt djamm á laugardagskvöldinu sem árshátíðin verður því ég ætla að djamma líka í tilefni af afmælinu mínu þar sem ég er að vinna þegar ég á afmæli:)

Ég og Guðrún skelltum okkur í bíó um daginn á step brothers, hún var alveg ágæt en annars hefur verið lítið um bíóferðir hjá okkur. Ég er enn að bíða eftir að mama mia komi út á DVD, ég verð sko fyrst til að fara og kaupa hana :)

Garðar er byrjaður aftur í skólanum en verður að vinna aðra hvora helgi í löggunni með skólanum í vetur.

Ég er búin að komast að því að það er ekki gefins að eiga bíl! Ég ákvað að láta skipta um tímareim og eitthvað tvennt annað, man ekkert hvað það er :) Hann Guðjón hennar Sigrúnar var svo elskulegur að gera það fyrir mig, svo þegar hann byrjaði þá tók hann eftir því að vatnskassinn er alveg að gefa sig svo hann pantaði nýjan og ætlar að setja hann í fyrir mig þegar hann kemur, en það var ekki búið þarna því hann sá að ein öxulhosa var alveg að slitna svo hann pantaði tíma til að láta skipta um það og það er búið. Allt þetta var gert meðan ég var í fríi á Akureyri og Garðar í DK. Þvílík þjónusta :) eftir helgi þegar það verður búið að setja nýja vatnskassann í þá verður bíllinn eins og nýr :) Takk Guðjón :)

Jæja ég nenni ekki að skrifa meira í bili, skrifa kannski aftur seinna :) Best að lofa ekki neinu þar sem ég er alltaf svo löt við að skirfa 8)

Bið að heilsa

Kv.
Nanna Rut:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 12:19:37 / Piglet

Take a chance on me...

Jæja, langt síðan síðast;) það er ýmislegt búið að gerast og ég er ekki alveg viss um að ég muni allt :) Ætlaði að vera búin að þessu fyrir löngu síðan:haha:

 Við opnuðum nýju búðina og það gekk bara mjög vel, að sjálfsögðu er þetta flottasta búðin ;) Hingað til hefur allt gengið vel en bara smá byrjunar örðuleikar. Þetta kemur allt með kalda vatninu :lol:

  • Fjölskyldunni til mikillar ánægju hefur verið lítið um djamm, það hefur nefnilega verið of mikið að gera í vinnunni :) en að sjálfsögðu bæti ég úr þessu :)
  • Núna er ég í sumarfríi heima á Akureyrinni og er búin að hafa það mjög gott á hótel mömmu :haha: að sjálfsögðu besta hótelið í bænum;)
  • Ég fór í bíó á Mama mia tvisvar :D Frábær mynd, mæli eindregið með henni ;)
  • Ég djammaði báðar fríhelgarnar mínar í júni og júlí :haha: djammaði líka síðustu helgi með Jógu :haha:
  • Næst á dagskrá er meira djamm :haha: Það er nefnilega þjóðhátíð í eyjum :haha::haha::haha::haha:
  • Ég kem svo aftur til Akureyrar eftir versló

 

Jæja nú nenni ég ekki að skrifa meira, ég má ekki alveg ofgera mér hehehe

 

Hafið það bara gott um verslunarmannahelgina og djamm, djamm, djamm :haha:

Kveðja
Nanna Rut;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 19:56:13 / Piglet

Love Love me...

  • ... eins og sést kannski á fyrirsögninni þá er Mika ennþá í miklu uppáhaldi, ekki ennþá búin að skipta um uppáhaldssöngvara. :)
  • En ástæðan fyrir einmitt þessari fyrirsögn er sú að Garðar (sem loksins fær að koma fram í blogginu honum til mikillar gleði) vill meina að það snúist allt um mig, það er ÉG þetta, ÉG hitt, ÉG, ÉG, ÉG,ÉG. Það getur vel verið að þetta sé satt, er ekki sammála þessu sko en hvað finnst ykkur?
  • Svo ÉG haldi nú áfram að tala um MIG :)
  • Þá var ég að útskrifast úr diplómanáminu og fékk rosa flott skjal og það var athöfn og sjálfur rektorinn á Bifröst afhenti okkur þetta allt saman. Meðaleinkunin hjá mér úr þessum áföngum var 8,19 nokkuð gott bara:haha: en mikið er ÉG fegin að þetta er loksins búið.
  • Mamma og Pabbi og Halla komu á Bifröst og auðvitað Garðar líka (vá bara nefndur 2 í sömu færslunni), síðan var farið út að borða og Askinum og ÉG fékk að sjálfsögðu fullt af gjöfum :) Frábær dagur í alla staði :haha::haha: Takk fyrir mig allir :d

  • Þá er bara spurning hvað ég á að gera næst? Einhverjar hugmyndir?
  • Það er allt á fullu í nýju búðinni, þetta er allt að koma, við verðum flutt yfir áður en við snúum okkur við.
  • Við skvísurnar 4 skelltum okkur í bústað fyrstu helgina í maí og var það alveg hreint geggjað :) þar var borðað og drukkið og sungið og spilað og drukkið og sungið og farið í pottinn og borðað og drukkið og farið í pottinn og spilað og farið í pottinn og borðað og drukkið og sungið og spilað og farið í pottinn. Mjög hressandi og skemmtilegt :) Takk fyrir frábæra helgi skvísur :)
Jæja þá nenni ég ekki að skrifa meira í bili held þetta sé komið gott í bili :)

Kveðja
Nanna Rut :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 19:21:46 / Piglet

Sucki'n to hard on your lollypop....

Jæja elskurnar hvað segið þið þá?
Eins og fyrirsögnin gefur til kynna þá er Mika í einstaklega miklu uppáhaldi þessa dagana.
Ég er búin að fá út úr prófunum og ég fékk 8 í öðru og 8.5 í hinu :) flott hjá mér :D:D:D Nú er þetta loksins búið er bara að bíða eftir að ég útskrifist sem er 6. maí 2008 þá er ég komin í skólapásu alveg þangað til mér dettur einhver önnur vitleysa í hug hehehe
Við Hagkaups skvísurnar erum að fara í bústað næstu helgi þar verður sungið og farið í pottinn og drukkið bæði áfengt og óáfengt :) og svo legið í leti það verður geggjað ég er að segja ykkur það hehehe.
Það var sígarettukynning hjá Rolf Johanson og skelltum við skvísurnar okkur þangað auðvitað. Ég og Guðrún byrjuðum á að fara í BBQ í Stórkaup og fórum svo á Broadway þar sem verið var að kynna sígarettur en þar sem við reykjum ekki þá létum við okkur nægja að smakka bjórinn sem var í boði :) Svo var dansað og auðvitað uppá sviði en ekki hvað við erum náttúrurlega alveg að farast úr athyglissýki hehehe:haha::haha: Svo tókum við bara Taxa í bæinn og skelltum okkur á Dubliners þar var dansað og dansað og dansað þangað til við fórum heim :lol::lol:
Á sunnudeginum fór ég til Ingu Láru í neglur, hún er nefnilega að læra að gera neglur. Núna er ég geggjað fín og verð ekkert smá fín á útskriftinni þegar ég fer og tek á móti skírteininu.

Það gengur allt bara nokkuð vel í nýju búðinni og við erum öll orðin frekar spennt fyrir því að geta byrjað að fylla á og annað sem þarf að gera. Þvílíkur spenningur kominn í liðið, Óskar öryggisvörður hélt einmitt party um daginn svona til að þétta hópinn fyrir flutninga og var mín bara edrú aldrei þessu vant :haha::haha::haha: slíkt kemur fyrir á bestu bæjum

Svo virðist vera að fleiri segja pylsa en pulsa samkvæmt skoðanakönnuninni sem verður virk bara í nokkra daga enn. Um að gera að kjósa meira hehe

Jæja er þetta þá ekki orðið gott í bili? Nógu langt svo að enginn nenni að lesa þetta :haha::haha:

Þangað til næst
Relax take it easy....

Nannsa Pannsa:haha:



» 5 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 08:37:51 / Piglet

Þá stundi Mundi

Datt ekkert betra í hug:)
Ég er að bíða eftir því að ALLRA síðasta prófið byrji, það byrjar semsagt kl 9 eftir hálftíma og hvað er betra að gera annað en að blogga? Þegar ég verð búin með þetta próf þá er ég komin LANGA pásu frá skóla takk fyrir túkall, ég er alveg komin með nóg, var sko búin að fá nóg þegar ég byrjaði í þessu fyrir 2 árum, en ég gat ekkert verið að hætta.Í tilefni af því að þetta sé loksins að klárast verður dottið all hressilega í það :) Það vill nefnilega svo vel til að það er Idol keppni Hagkaupa í kvöld og auðvitað ætlum við skvísurnar að skella okkur. Við ætlum þó bara að mæta og horfa á alla hina en sleppa því að syngja :)
   En svona af því að við erum að tala um Hagkaup þá er nýja búðin alveg að verða tilbúin, það er orðið mjög stutt í að við opnum, vá það verður sko ljúft, því hin er náttúrlega bara að hruni komin.
Svo er ég búin að skipuleggja sumarfríið mitt, það verður svona vika hér og vika þar, búin að dreifa vel úr þessum 5 vikum sem ég á. Það er nefnilega svo mikið sem þarf að gera en gerist víst ekki allt á sama tíma svo þetta verður dálítið öðruvísi frí. Í fríinu ætla ég að vera c.a. 3 vikur á Akureyri en skjótast rétt til eyja á milli um versló. Svo tek ég viku í sept eða okt og svo viku í jan eða feb. Mjög gott.
   Ég er búin að panta mér flug til Akureyrar næstu helgi, það verður gott að komast aðeins heim og hitta alla, get ekki beðið, hef ekkert komið heim síðan í janúar.
   En yfir í annað ég er búin að breyta um skoðunarkönnun það voru nánast allir sem voru sammála um það að háskólagráða og peningar veiti fólki ekki hamingju. Nýja skoðanakönnununin er um pylsur eða pulsur hvort segjum við pylsa eða pulsa. Mér datt bara ekkert betra í hug, þetta er ekki alveg jafn mikil pæling og síðasta könnun. Endilega kjósa :)

Jæja nenni þessu tuði ekki lengur þarf að gera mig klára fyrir próf síðasta prófið :haha::haha:

Kveðja
Nanna Rut


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 20:31:13 / Piglet

Hmmmm.....


         Jæja þá, kominn tími á eins og eitt blogg eða svo :)
  • Við Hagkaups píurnar skelltum okkur á Nasa þar síðustu helgi þar sem Páll Óskar var með eurovision party. Við byrjuðum á matarboði heima hjá Svanbjörgu, horfðum á Laugardagslögin og helltum í okkur í leiðinni. Síðan kom Sigrún súpermamma og leigubílstjóri með meiru og skutlaði okkur á Nasa. Þar var mega stuð en ferlega þröngt. Um fjögur leytið ákváðum við að fara eitthvað annað að dansa. En þetta var geggjað skemmtilegt og vorum við komnar heim eins og venjulega um 6 leytið :)
  • Helgina fyrir palla djammið fórum við skvísurnar í bíó á P.S. I love you sem er MJÖG góð, mæli eindregið með henni. Nema hvað ég Guðrún & Svanbjörg grenjuðum úr okkur augun svona rétt eins og allar aðrar stelpur í salnum ;) Eftir bíóið nentum við ekki heim en keyrðum Svanbjörgu heim til hans Hjörvars. Svo skelltum við okkur á rúntinn en okkur langaði svo svakalega að fara að dansa svo við ákváðum bara að fara edrú á djammið, ómálaðar og engan veginn í djamm gallanum. En það var svaka fjör á djamminu :)
  • Síðustu helgi gerðum við það sama, ég & Guðrún ætluðum heldur betur að vera þægar og góðar þar sem það var nú talning í Garðabænum og við áttum að mæta þar um tvö daginn eftir :) Svo við skelltum okkur í bíó á 27 dresses sem er mjög góð, þessi týpíska ameríska stelpumynd, gífurlega hressandi. Svo áður en við vissum af vorum við mættar á dansgólfið og farnar að dilla okkur :) edrú aftur. Við skemmtum okkur konunglega þó svo við værum edrú og engan veginn í djammgallanum :) með nákvæmlega ekkert glimmer hmm pælum aðeins í því :)
  • Næst á dagskrá er bara danskir dagar í Hagkaup og svo páskarnir. Þess á milli verður skellt sér á dansgólfið og tjúttað aðeins, annað hvort edrú eða með bakkusi það er bara hreinlega ekki ákveðið ennþá en verður pott þétt skemmtilegt eins og alltaf :) hehehe
  • Annars er allt gott að frétta í vinnunni við bíðum bara spennt eftir því að opna nýju búðina :)
Jæja þá ætla ég að hætta þessu bulli og fara að horfa á TV :)

Kveðja
Nanna Rut

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 20:07:27 / Piglet

Pælingar...

...stundum fær svona fólk eins og ég djúpar pælingar ;)

Ég er búin að ákveða að varpa fram spurningu. Það er ósköp lítið sem býr á bakvið hana en endilega kommentið á hana :)

Hvernig veit maður að maður hafi tekið rétta ákvörðun?

 

Já já miklar pælingar í gangi en ekkert alvarlegar. Stundum hefur maður bara of mikinn tíma ;)

 

Allavega næst á dagskrá er djamm á Nasa þar sem Páll Óskar hinn fallegi mun halda uppi stuði og stemmningu og ætlum við Hagkaups GLIMMER gellur að fara og horfa á goðið :)

 

Kveðja

Nanna Rut

 

Endilega kommentið :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 20:16:59 / Piglet

Pása.....

...jamm, það er komið að djammpásu, pælum aðeins í því :)

Það verða eflaust einhverjir fegnir að lesa það að litla stelpan í stóru borginni sé komin í djammpásu. Sumum var víst ekkert farið að lítast á allt þetta djamm & djús hjá mér og ekki var vinsælt að þurfa að lesa um það á blogginu :D En ég vil meina að maður bara verði að sleppa sér aðeins svona eins mikið og maður hefur þörf fyrir áður en maður festir sig alveg endanlega (sem er ekki að fara að gerast á næstunni, alveg róleg sko)

Djamm pásan mun nú ekki vara neitt voðalega lengi sko þannig engar áhyggjur :) Málið er að ég er búin að vera svo mikið illt í hælnum síðan í júlí á síðasta ári, og fékk svo þá góðu hugmynd í desember alveg 6 mánuðum seinna að skreppa til læknis, en hann bullaði bara tóma steypu. Spurning hvort hann hafi kannski bara verið steypukall :haha:  allavega svo fór ég til Ak og ákvað að kíkja til heimilislæknis sem sagði mér að það er eitthvað bein sem stendur niður úr hælbeininu og er fast við eitthvað annað og það veldur þessu illti í hælnum. Hann tók þá ákvörðun að skella mér á bólgueyðandi því það er það eina sem er gert við þessu og þess vegna þarf ég að fara í smá djammpásu. Áfengi og bólgueyðandi fara ekki vel saman :!:

Allavega. ég var um jólin á Bifröst, með Garðari, mömmu hans, systir hans og fjölskyldu. Þar borðaði ég mjög framandi mat að mér finnst hahaha. Í matinn var grafin önd, rjúpur, hreindýr og hamborgarahryggur. Mjög gott allt saman (sem ekki var hrátt eða rautt, því ég borða það ekki):)

Um áramótin fór ég og Garðar heim til ma & pa og ég kláraði sumarfríið mitt sem var eftir þannig að ég fór ekkert til rvk fyrr en 8. jan. Þvílíkt notalegt frí, bara heima að hanga og horfa á tv & heimsækja mann og annan :)

14. des skelltum við dömurnar okkur á tjúttið, ég, Gudda & Svabbily fórum á prófloka/jóladjamm, vorum ýkt fínar með blikkandi hreindýra eyrnalokka og slatta af glimmeri :) Við dönsuðum eins og við fengjum borgað fyrir það og var mikið stuð á okkur skvísunum.

5.jan fór ég á djammið með Jógu og Theu, svona akureyriskt djamm, það er nefnilega allt öðruvísi en reykvískt djamm, því það lokar allt kl 04 og það er ekkert pizza king. En við tjúttuðum til kl 04 og svo var ákveðið að labba heim, ég, Jóga & Láki röltum heim :) Við vorum með smá þema og það var allar í pilsi og allar með MIKIÐ glimmer

12.jan Bauð Guðrún okkur Hagkaups gellunum í mat, dýrindis sumarbústaðar kjúlla mmmmm. Svo var bara hellt í sig og haldið niðrí bæ, þemað þetta kvöldið var GLIMMER. Við tjúttuðum að reykvískum sið og vorum að til 6 hehehe þannig á það að vera:)

19. jan var svo svaka dekurdagur hjá okkur. Ég, Guðrún og Svanbjörg skelltum okkur í laugar spa sem var bara geggjað. Ég fór svo í nudd og notaði þar með gjafabréfið sem Garðar gaf mér í afmælisgjöf. Það var bara geggjað :) svo drifum við okkur heim til Svanbjargar að horfa á leikinn þar sem Inga bættist í hópinn. Við horfðum á leikinn og tókum okkur til því við vorum að fara á Ítalíu að borða. Þar fengum við ýkt góðan mat, síðan fórum við aftur heim til Svanbjargar að gera okkur ennþá sætari og hella í okkur. Síðan héldum við í bæinn, ég, Guðrún og Inga en Svanbjörg var eftir heima því hún meikaði bara ekki að fara niður í bæ. En við vorum búnar að fá miða á Dalton á Gauknum og var því haldið þangað. Þar tjúttuðum við heilmikið en stungum svo af og fórum á nokkra aðra staði. Um hálf 6 ákvað ég og Guðrún að fara heim síðastar í hópnum eins og alltaf heheheh

Takk kærlega fyrir öll skemmtilegu djömmin :) Næst á dagskrá er svo marshátíð smáralindar í apríl og idolkvöld Hagkaupa einhverntíman :)

En þangað til ætla ég að vera í djamm pásu :):)

Sumum til mikillar ánægju ;)

Jæja nú er þetta orðið alltof langt og enginn nennir að lesa þetta sem er bara mjög gott :)

Kveðja

Nanna panna GLIMMERgella.is :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 01:40:52 / Piglet

Hó hó hó :)

Gleðileg jól :)
Sökum mikilis tímaskorts þá náði ég ekki nógu snemma á pósthúsið með jólakortin
svo þau eru líklegast ekki væntanleg fyrr en í janúar fyrst að pósturinn vill ekki vinna þegar mér hentar :) hehe ein voða frek :D
 
Ég bara er ekki ein af þeim sem get vakað langt fram á nótt að skrifa kort vegna þess að
ég sofna bara og það er ekkert sem stoppar mig í því :)
 
En fallega fólk hafið það bara gott um jólin
 
Guðrún, Inga Lára og Svanbjörg við sjáumst svo hressar og kátar 26.des :)
Jóga, Inga og Thea við hittumst hressar og til í allt 5.jan :)
 
Sigrún mín ég kíki á þig strax í janúar með buxurnar þínar :) (ég hef sko 31 dag í janúar :))
 
Sandra það er bara same old, same old við finnum okkur tíma við tækifæri við erum svo busy alltaf á sitthvorum tímanum, æi þú skilur hvað ég á við :)
 
En þið hin see ya when I see ya :)
 
Jólakveðja Nannsa pannsa :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 20:05:13 / Piglet

Time flies when you’re having fun..

...já já mikið rétt, tíminn bara flýgur áfram. Spurning um að fá sér vængi og fljúga með hmmm (hahahah alltaf sami aulahúmorinn8)) Það er nefnilega þannig að síðan í byrjaði í Hagkaup Garðabæ þá hefur tíminn hreinlega fokið frá mér og ég held ekkert í við hann. Mér finnst ég hafa komið heim frá Boston í síðustu viku:!:

Ég, Guðrún og Svanbjörg unnum á tónleikum síðustu helgina í október, nánar tiltekið á Rúnar Júll tónleikum ekki leiðinlegt það sko :)

Síðan ég bloggaði síðast þá er árshátíðin yfirstaðin :D og tókst atriðið okkar MJÖG vel :D :D :D myndbandið er meira að segja á netinu hahahahaha þið verðið bara að biðja um slóðina ef þið viljið sjá það :) Allavega árshátíðin var alveg mega skemmtileg, ég var á Broadway þangað til okkur var hent út og þá var haldið í bæinn :) Það voru allar búðirnar með þema og var okkar búð með kórónu sem á stóð Garðabær og vorum við eins og prinsessur og prinsar alveg ógó sæt :) Stórkaup var með það flottasta sem voru appelsínugular skikkjur með s aftan á fyrir stórkaup og ég fékk eina og Guðrún og Svanbjörg. Ég á mína ennþá :) Ég og Guðrún fórum með okkar í bæinn og vorum ýkt töff :D Ég var eins og prinsessa með kórónu og skikkju en Guðrún var þemamella þar sem hún var með þema frá hverri búð :) Við vorum allar mjög fínar ég var í nánast öllu frá Debó, kjóll, kápa, skartgripir og förðun allt í Debó :) (smá auglýsing Sandra mín :))

Helgina eftir árshátíðina fór ég norður til ma og pa og hafði það voða kósý heima á Akureyrinni, heimsótti ömmurnar, fór í pottinn og borðaði mömmumat mjög gott mmmm:haha:

Skólinn er búinn í bili og fékk ég 8,5 í verslunarrétti og 9,5 í stjórnun og samstaf ýkt montin með það :haha:

Ég og Garðar fórum yfir öll fötin okkar og fór einn svartur ruslapoki í nytjagáminn í sorpu og annar bara beint í ruslið, ótrúlegt hvað maður safnar að sér :)

Síðustu helgi bauð Svanbjörg okkur stelpunum í dýrindis pastarétt mmm takk fyrir góðan mat Svanbjörg:) Svo héldum við allar í bæinn að dansa dansa dansa :)

Jæja ég held að það sé allt komið í bili man ekki eftir meiru sem hefur gerst síðan síðast :) Ég er alltof löt við að blogga, en er alltaf að reyna að taka mig á hehehe það bara hefur ekki gengið ennþá :) en góðir hlutir gerast hægt eins og maðurinn sagði :)

Nú nenni ég ekki meir, þangað til næst

Bæjó spæjó

Nannsa pannsa


» 21 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 18:47:14 / Piglet

ég veit það ekki

Já þið eruð öll svona svakalega hress :)

  • Ég fór í endajaxlatöku í byrjun okt og kallin reif þá alla 4 úr í einu, það var nú ekkert svo slæmt ég fann voða lítið fyrir þessu, heyrði aðallega þegar jaxlarnir voru að losna frá :) En það allra versta við þetta var reikningurinn:!: hann var stór sérstaklega þar sem þetta tók hann ekki nema 15 mín að rífa þetta úr, ég lá svo bara í stólnum í 10 mín að jafna mig á hlátursgasinu :)
  • Ma og pa og yndislegu systur mínar komu sömu helgi og tennurnar voru rifnar úr og nýtti ég mér það, fékk fína þjónustu :)
  • Nýja vinnan gengur vel, þetta er mjög gaman, ég hlakka alveg skelfilega mikið til að fara í nýja Garðabæinn, þar sem sá gamli míg lekur, ef það kemur rigning þá eru bara pollar út um allt :) maður mætir bara í regngalla í vinnuna hahahaha:haha::haha:
  • Ég var NEYDD í árshátíðar atriði með Smáralindinni :!: ég hef aðeins eitt um það að segja: Þetta verður MJÖG skrautlegt :)
  • Ég og Garðar skelltum okkur í sumarbústað síðustu helgi og höfðum það kósý, eða ég allavega, ég var sofnuð fyrir 23:00 hehe ofboðslega skemmtilegur félagsskapur :) Það komu svo gestsir á laugardeginumog borðuðum við saman og fórum í pottinn og svona og Garðar greyið fékk smá félagsskap það kvöldið því ég var sofnuð um eitt leytið 8) Garðar vildi fara og skoða Kerið en mér fannst það nú ekki merkilegt að skoða einhverja holu með vatni í 8) hehe
  • Skólinn hefur gengið vel hingað ti, ég hef verið að fá góðar einkunnir, svo er fyrra prófið 3. nóv sem sagt sama dag og árshátíðin :D ég fer sem sagt í próf og svo á Broadway í generalprufu og svo bara að taka mig til fyrir árshátíðina. Þetta verður gaman og skrautlegt hehehehehehehehehe ég sé þetta alveg fyrir mér, ég deili þessu með ykkur eftir árshátíðina hehehehe
  • Jæja ég ætla að fara að drífa mig er að fara að hitta krakkana og æfa atriðið
  • þangað til næst hafið það gott :haha:
  • Já meðan ég man, ef ykkur vantar vinnu þá endilega komið til okkar :D okkur bráðvantar fólk helst bara í síðustu viku :haha:
 
 
Elska ykkur öll
Nanna Rut

» 10 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 14:57:29 / Piglet

Já þú meinar

Jæja þá er vika síðan við komum heim úr sumarbústaðnum :) Það var alveg geggjað gaman hjá okkur skvísunum :D

  • Við lögðum af stað í bústaðinn á föstudeginum beint eftir vinnu
  • Þegar í bústaðinn var komið byrjuðum við að drekka
  • Við drukkum
  • og drukkum
  • og drukkum :D
  • Borðuðum HELLING af nammi, svo var svo geggjað góður matur hjá okkur á laugardagskvöldinu
  • Laugardeginum var hins vega eytt í það að horfa á DVD
  • Við fórum í pottinn og létum ekki leiðinda rok og rigningu stoppa okkur
  • Í pottinum héldum við áfram að drekka :)
  • Það var farið í sing star og aðallega sungið eye of the tiger, don't stop me now og final count down við erum ábyggilega allar komnar með leið á þessum lögum :D
  • Svo var bara drukkið og drukkið og spilað drykkjuspil :) og drukkið
  • Við spiluðum pictionary sem endaði þegar ég sullaði yfir allt úr stút fullu glasi:haha: mér fannst það voðalega fyndið hehehehehehehehehehehehehehe
  • Já svo var bara drukkið og borðað og drukkið og borðað
  • Á sunnudeginum hrfðum við á DVD tókum til og fórum heim um fjögur leytið
  • Þetta var alveg frábær helgi :)

  • Föstudagurinn var líka minn síðasti vinnudagur í Smáralindinni eftir 10 mánaða stopp þar og MJÖG góðan tíma með FRÁBÆRU fólki
  • Á mánudaginn síðasta byrjaði ég í nýju vinnunni sem sagt í Hagkaup í Garðabæ sem er 4 búðin sem ég fer í svo það er óhætt að segja að ég sé Hagkaups hóra :) Við erum að fara að opna nýja búð í Garðabænum á næsta ári sem er mikið tilhlökkunarefni meðal starfsmanna í haggaranum í Garðabænum.
  • Mesta breytingin á því sem ég er að gera öðruvísi í Garðabæ en í Smáralind er sú að ég er með annan titil á nafnspjaldinu og fæ að vita meira hvað er að gerast og ég er að panta inn í tilboð, annars er þetta voða svipað. Já auðvitað ég skipti um helgar og er að vinna eina helgi í mánuði sem er voðalega notalegt :)

  • Það sem er næst á dagskrá er endajaxlataka, fjölskyldan er að koma í borg óttans og ég er að fara á vinnuhelgi á Bifröst allt sömu helgina :)

Ég læt fylgja með eina mynd úr bústaðnum þar sem við lágum fyrir framan DVD á laugardeginum ég læddist upp á loft og náði mynd af þeim :D

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 18:24:09 / Piglet

Jæja þá

Þá er ég og Sigrún komnar heim frá Boston, við komum reyndar heim mánudaginn 10. sept. Við gerðum fátt annað en að versla, ég held við höfum bara ekkert gert annað en að versla, sofa og borða :D En það var mjög gaman, það er hreinlega ekki séns að ég nenni að telja upp það sem ég keypti en við skulum segja að það hafi verið MIKIÐ og Sigrún verslaði ennþá meira :D

Svo erum við vinkonur bara byrjaðar að safna fyrir næstu ferð sem verður farin á sama tíma að ári, je minn hvað mig er farið að hlakka mikið til þeirrar ferðar :)

Þá verður nú verslað álíka mikið, ef ekki meira en núna :)

Takk Sigrún fyrir frábæra verslunaferð :D

Skólinn er  byrjaður, voða gaman, en þetta fer alveg að verða búið:!:

Næst á dagskrá er svo bara all svakalegt djamm með Hagkaups gellunum sem mun standa yfir heila helgi í sumarbústað á afviknum stað svo enginn heyri lætin í okkur, þau eru nefnilega frekar mikil þar sem við ropum eins og verstu fylliraftar og hlæjum eins og hross hahahahahahahaha nú fá allir ægilega slæmar hugmyndir um okkur hehehehehehehehehehe :klikk: :haha::haha: 

jæja þá er ekki mikið að segja í bili ég blogga kannski eftir helgi, ef ég verð í ástandi til þess, þá læt ég jafnvel myndirnar tala sínu máli en sjáum til með það hehe

þangað til næst hafið það gott um komandi helgi og ekki gera það sem ég myndi ekki gera sem er ekki neitt hahahahahahahahahahahahahaha

:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:

:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:

Sí jú gæs kveðja Nannan sem getur ekki beðið eftir því að fara í fyllerís ferð í bústað :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 12:02:55 / Piglet

Atjú, atjú....

Jæja þá:!:
Við stelpurnar fórum í útilegu síðustu helgi og var það nú bara mega stuð :)
Það tók okkur heila 5 klukkutíma að fara frá Hagkaup Smáralind og í Fossatún í Borgarfirði :)
Hvernig fórum við að því? Við erum jú konur og þær þurfa sinn tíma :) Við þurftum að fara í Rúmfó og Bónus að versla, við versluðum alveg heilan helling af mat og tók það sinn tíma.
Þegar það var búið komumst við að því að við 4 gátum engan veginn farið á einum bíl hehehe :) Við 4 vorum semsagt, ég og Svanbjörg sem fórum á mínum bíl og Guðrún og Inga Lára sem fóru á Ingu bíl. Síðan var ákveðið að hittast bara í Mosó því við þurftum að fara heim til allra. Þegar við komum svo í Mosó fengum við okkur að borða og allar fengum við vitlausa pöntun svo þetta tók sinn tíma. Eftir að við komumst að stað úr Mosó þá tók þetta ekki nema c.a. klukkutíma :)
Þegar í Fossatún var komið var slegið upp tjaldbúðum eða réttara sagt einu tjaldi sem var eins og íbúð á stærð :) Ég og Inga Lára vorum herbergisfélagar og Guðrún og Svanbjörg kúrðu saman í hinu herberginu. Eftir að tjaldbúðirnar risu vorum við ekki lengi að byrja að hella í okkur "vatninu"
Á laugardeginum skruppum við í Borgarnes í sturtu í sundlauginni og skoðuðum Hagkaup, sem er voða lítil, svona eiginlega eins og sýnishorn af því sem til er :) Við fórum svo bara aftur á tjaldstæðið og voru þá vinkonur Ingu búnar að tjalda við hliðina á okkur. Við byrjuðum að blanda okkur í 1L flöskur strax um fjögur leytið en hinum stelpunum fannst það of snemmt hehehe Ég held reyndar að þeirra álit á okkur sé : Fyllibyttur, sorakjaftar og ekki til dama í okkur :) hehehe
Þegar kvölda tók og við búnar að borða mega góða hamborgara ala Inga ákváðum við nú að fara í hinn góða drykkjuleik sem ber nafnið "ég hef aldrei" en vinkonur Ingu vildu ekki vera með svo þær sátu bara og hlustuðu á okkur. Við hinsvegar skemmtum okkur konunglega. Ég hringdi meðal annars á FM 957 og bullaði í aumingjans drengnum sem svaraði þar, Guðrún hringdi síðan 118 og lenti óvart á því að karlmaður svaraði, hún var nú ekki lengi að byrja að daðra og hlógum við hinar eins og hross fyrir utan mýsnar 3 í hinu tjaldinu :)  Við skemmtum okkur alveg æðislega og drukkum fram á nótt, svo bara vöknuðum við daginn eftir og vorum ekkert þunnar, hentum niður tjaldbúðunum og keyrðum í bæinn :) Ég og Guðrún erum búnar að vera fullar af kvefi síðan í útilegunni, því við erum jú báðar með svo mikið ofnæmi, við vorum búnar að vera í svona korter á tjaldstæðinu þegar við vorum byrjaðar að finna fyrir einkennum, en við létum það nú ekki stoppa okkur :)
En jæja stelpur ég þakka bara kærlega fyrir frábæra ferð og er strax farin að hlakka til næsta djamms :)
Eitt enn ég er alveg að fara til Boston :haha:
 
Elska ykkur öll
   
Sjáumst og heyrumst
 
Nanna Rut :haha:
 
ekki gleyma að kíkja á ferlega smekklegar myndir af útilegunni :)

» 17 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Myndasíðan mín